Færsluflokkur: Pepsi-deildin
27.9.2008 | 19:30
BARA GAMAN
Við fjölskyldan erum búin að styðja FH inga dyggilega núna í lok sumars, sitja rennandi blaut í Krikanum á hverjum leiknum á fætur öðrum. Þetta er orðið að fjölskyldusporti hjá okkur og hefur svo sannarlega verið þess virði!
Það er gríðarlegur karakter í liðinu og frábær árangur hjá Heimi Guðjónssyni að ná þessum árangri í fyrsta sinn sem aðalþjálfari liðsins. Daði Lárusson hefur ekki spilað marga undanfarna leiki, Tryggvi var ekki með í dag og Dennis ekki heldur. Það breytti engu og Íslandsmeistararatitillinn í höfn. Til hamingju FH ingar!!!
FH Íslandsmeistari 2008 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)