8.3.2009 | 20:59
Flott kona í 3. sæti
Ég get ekki annað en óskað NV kjördæmi til hamingju með þessa glæsilegu fulltrúa á lista Samfylkingarinnar. Við Arna Lára höfum þekkst síðan við bjuggum saman í Kaupmannahöfn í 2 ár árin 2002 - 2004. Þarna fer dugleg og greind kona sem ég ber virðingu fyrir. Ég hef fulla trú á að hún muni starfa af heilindum fyrir kjördæmið allt.
Nú er pressa á mínu fólki í Sjálfstæðisflokknum að raða upp flottum lista í kjördæminu. Án kvenna getur Sjálfstæðisflokkurinn ekki verið trúverður í því endurreisnarstarfi sem nú er framundan. Það er alveg ljóst. Það eru 4 mjög frambærilegar konur í framboði fyrir NV kjördæmi og skora ég á flokksmenn mína að tryggja amk. einni þeirra öruggt þingsæti, helst 2
Guðbjartur efstur - Ólína í 2. sæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.