Breytingar á breytingar ofan

Nú veit ég ekki hver það er sem fer með fleipur, mbl.is eða hvort það er hinn nýji meirihluti sem er að hagræða sannleikanum.  Þegar ég vann í Ráðhúsi Reykjavíkur var það Helga Jónsdóttir sem var borgarritari R-listans og æðsti maður stjórnsýslu Reykjavíkurborgar.  Þetta var árin 1998 - 2002.  Hvort R - listinn lagði stöðuna niður í einhverjum skipulagsbreytingunum í lok valdatímabils síns eða eins og ég sagði áðan að mbl.is er að misskilja þetta, veit ég ekki.   Vilhjálmur og Sjálfstæðisflokkurinn bjuggu ekki þessa stöðu til í fyrra, svo mikið er víst.  Mér þykir líklegra að staða borgarritara hafi orðið til fyrir heldur lengra síðan.

 Ég hef nú lítillega haldið sambandi við mitt fyrrum samstarfsfólk í Ráðhúsinu, þó minna undanfarin misseri enda ansi margir hættir og búnir að fá nóg af stanslausum breytingum hjá Reykjavíkurborg.

Ég giska á að R-listinn hafi sett heimsmet í stjórnsýslubreytingum á valdatíma sínum í Ráðhúsinu og vandséð hvernig hægt hefði verið að flækja málin meira en gert var á þeim tíma.  Það kæmi mér því ekki á óvart að hægt væri að telja það starfsfólk sem enn er í Ráðhúsinu frá því ég hætti, fyrir 5 árum síðan, á fingrum sér.

 


mbl.is Embætti borgarritara lagt niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband