8.5.2008 | 21:25
Sparnaðurinn hefst
Fjölskyldan fjárfesti í soda stream tæki í dag. Mér finnst hafa verið slegnar margar flugur í einu höggi með þessari fjárfestingu. Í fyrsta lagi sparast fjármunir, miklir fjármunir! því sódavatnið sem drukkið er á þessu heimili er engin hemja skal ég segja ykkur!!
Í öðru lagi finnst mér ég vera umhverfisvænni í dag en í gær þar sem nú þarf ég ekki að nota alla þessa brúsa sem fara svo í endurvinnsluna sem færir mig að þriðja laginu en það snýst um að ég þarf ekki lengur að rogast með alla þessa lítra af vatni í brúsunum heim í hverri viku úr búðinni.
Þetta er stórkostlegur áfangi eða amk hænuskref.....
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.5.2008 kl. 14:30 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.