skoðanakönnun strax á fylgi flokks Davíðs

Þetta ætlar að verða sársaukafullur dauðdagi merkilegs stjórnmálamanns og í raun öllum fyrir bestu að þessu linni sem fyrst.

Getur ekki eitthvað rannsóknarfyrirtækið tekið það að sér að kanna áhuga landsmanna á framboði Davíðs og því fylgi sem maðurinn hefur, það gæti skilað okkur uppúr þessari skotgröf strax og óþarfi að eyða landsfundi Sjálfstæðisflokksins í að pískra það mál fram og til baka.

Það ríkir stjórnmálakreppa í Íslandi í dag og framvinda mála núna allt of lengi búin að snúast um persónu Davíðs.  Hann hefur orðið fyrir ómaklegum árásum á margann hátt.  Davíð kallar þær yfir sig sjálfur með orðbragði sínu, þess vegna er ekki hægt að hafa samúð með honum.

Trúverðugleiki Íslands bæði innávið og útávið veltur að hluta til á að Seðlabankastjórnin víki, það er alveg klárt.  Það er ekki það eina sem þarf að gera.  Yfirstjórnir bankana þurfa að víkja, bankaráðin eru að mörgu leyti djók og stjórnendur fjármálaeftirlitsins líka.  Málefnavinna, landsfundir, prófkjör og kosningar munu sjá um að hreinsa til í pólitíkinni þegar að því kemur.

Hér þurfa að breytast vinnubrögð, það er alfa og omega í þessu öllu.  Ég verð ekki sátt fyrr en ég heyri raunverulegan afdráttarlausan tón sem ég trúi á í þá átt að hér verði gegnsæ, heiðarleg og skynsöm vinnubrögð allstaðar í öllu stjórnkerfi landsins.


mbl.is Miserfitt að hætta í pólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Idda Odds

Það er búið að gera slíka könnun. Sérframboð Davíðs fengi 4% en sjálfstæðisflokkurinn undir stjórn Davíð 9% ef ég man rétt. Ekki beint mikil ógn í þessum orðum.

kv.

Idda

Idda Odds, 4.12.2008 kl. 15:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband