Er vont að neyslan aukist?

Er endilega svo vont að neysla aukist?  Það er til dæmis ekkert athugavert við það þó ég myndi kaupa mér 1 rauðvínsflösku meira á viku en ég geri.  Ég má vel við þvíTounge

Mér þykir forsjárhyggja með öllu óþolandi.  Fólki á að vera treyst til að bera ábyrgð á sjálfu sér.  Það vill brenna við að fólki finnst að ríkið eigi að bera ábyrgðina, vera einskonar stóri bróðir eða mamma okkar.  Því er ég algerlega ósammála.  Á hinn ábyrgi meirihluti að búa við skert valfrelsi vegna þeirra fáu sem ekki geta með áfengi farið?  Á alltaf að miða við minnsta samnefnara?

 Af hverju á Ísland að vera með þeim fáu löndum á byggðu bóli sem getur ekki selt bjór í búð?


mbl.is Landlæknir: Afnám einkasölu ÁTVR mun auka áfengisneyslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Af hverju á Ísland að vera með þeim fáu löndum á byggðu bóli sem getur ekki selt bjór í búð?"

Veistu, ég hef ekki minnsta grun um hvernig farið yrði að því að svara þessari spurningu. Það er ekki hægt. Sem, fyrir mér, lýsir hversu fáránlegt þetta er allt saman.

Nostradamus (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 15:36

2 identicon

Það er ríkt þetta sjónarmið hjá fólki að svokölluð "vínmenning" sé eftirsóknarverð. Í þessu sambandi er stundum vitnað til miðjarðarhafslandanna, Ítalí, Frakklands og Spánar. Þar er aðgengi mjög gott, allar verzlanir fullar af búsi og dagdrykkja viðurkennd sem hluti af kúltúr. Þar sér ekki vín á nokkrum manni. Hvernig ætli standi þá á því að í þessum þremur löndum er hæsta tíðnu skorpulifurs í heimi? Þar deyja flestir úr sjúkdómum tengdum áfengisneyzlu en nokkur staðar annars staðar í Evrópu? Mér finnst þetta umhugsunarvert.

Íslendingar eru ekkert öðruvísi en annað fólk. Þeir hafa 46 litninga, 23 frá móður og 23 frá föður, líkt og aðrir í heiminum. Það að Íslendingar gúffi í sig brennsa af því hann er svo dýr er bara þvæla. Fólk drekkur vegna þess að því líkar áhrifin og alkóhólismi er raunverulegur, líkamlegur heilasjúkdómur. Svipað hlutfall Íslendinga þróar með sér áfengissýki og í nágrannalöndunum, að undanskyldum Inúítum. Drykkjuvenjur okkar eru vissulega litaðar af þjóðfélagslegum þáttum eins og opnunartímum, vinnuálagi, veðurfari og lífsviðhorfum.

Þetta breytir samt ekki þeirri staðreynd að aukin neyzla felur í sér aukinn heilbrigðisvanda. Þá gildir engu hvort við hættum að rúlla ofurölvi um miðbæinn um helgar eða sötrum 1-5 bjóra heima á virkum kvöldum. Það er þetta stanslausa sull, öðru nafni "vínmenning", sem á eftir að koma okkur í koll eins og miðjarðarhafslöndunum. Þar á eftir að koma fram langvarandi vandi meðal eldra fólks með alvarlegum afleiðingum fyrir þjóðarbúið. Þarna eru dýrir sjúkdómar á ferð og það er ábyrgðarleysi að kasta fram svona frumvarpi án þess að gera ráð fyrir úrræðum í heilbrigðis-, meðferðar- og félagsmálum.

Páll Geir Bjarnason (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 18:40

3 identicon

En er það ekki á ábyrgð hvers og eins hversu mikið hann drekkur og hversu langt hann vill láta stjórnast af drykkju? Er það ekki bara eins og með nammið, manni langar aldrei eins lítið í eins og þegar það er beint fyrir framan mann og maður má fá þegar maður vill :)

Agðan (IP-tala skráð) 26.10.2007 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband